Fullkomnir gluggar fyrir heimilin sem og fyrirtækin.
uPVC gluggarnir okkar skilvirkir í orkunýtingu ásamt því að vera endingargóðir og nánast viðhaldsfríir. Einangrunin er sérstaklega góð þar sem gluggarnir viðhalda hita vel, tvíglerja uPVC gluggar eru með 0,6 uG gildi (gerist ekki mikið betra, nema með þríglerja uPVC) sem skilar sér í orkusparnaði fyrir neytandann. uPVC gluggarnir koma í ýmsum stærðum og gerðum í mismunandi litum, þess vegna getum við sérsniðið uPVC gluggana í hvaða arkitektúr sem er. uPVC gluggarnir okkar eru með þeim bestu í evrópu, samstarfsaðili okkar Aluplast er frumkvöðull í uPVC gluggatækni sem tryggir hæstu gæði. uPVC gluggarnir eru sérstaklega góður kostur í sjávarþorpum þar sem raki og sjóselta er í miklu magni. Ef þú ert að leita að hágæða vöru á hagstæðu verði þá er uPVC einstaklega góður kostur.
Lykilatriði : Orkusparnaður, lítið viðhald, góður endingartími, fjölbreytt hönnun, aluplast gæði, sterkt viðnám gagnvart salti og raka ásamt hagstæðu verði.
Álgluggarnir okkar eru stílhreinir, nútímalegir og sterkbyggðir ásamt því að vera ryðfríir. Gluggarnir umhverfisvænir þar sem ál er 100 % endurvinnanlegt efni. Hönnunar möguleikarnir eru takmarkalausir vegna þess að ál er bæði sterkt og sveigjanlegt. Orkusparnaðurinn er mikill þökk sé góðri einangrun sem leiðir til lægri hita-og rafmagnskostnaðar. Ál er einnig létt efni miðað við hversu sterkt það er sem leiðir til auðveldari ísetningu. Ef áhugi liggur fyrir sterkbyggðum stílhreinum glugga sem einangrar vel og tærist ekki, þá er álglugginn fyrir þig.
Lykilatriði: Nútímaleg hönnun, sterkbyggðir og áreiðanlegir gluggar, Sveigjanleiki í hönnun, eldvarnir , þægilegir í uppsetningu og einstaklega góðir fyrir stærri glugga.
Viðargluggar búa yfir fallegu og hlýlegu yfirbragði sem gefa húsum klassískt og náttúrulegt útlit. Við bjóðum upp á margskonar tegundir af trjám sem hentar við mismunandi aðstæður , hvort sem áhugi liggur fyrir mýkri við eða harðvið. Allir viðargluggarnir okkar eru sérsmíðaðir, hentar sérstaklega vel fyrir eldri hús sem þurfa að varðveita arkitektúrinn.
Lykilatriði: Náttúruleg fegurð, góð einangrun, vistvænn kostur, sérsniðinn, klassískt útlit.