BKS gluggar er fyrirtæki staðsett í Reykjavík. Markmiðið okkar er að bjóða upp á hátæknilega glugga fyrir íslenskan markað. Gluggarnir uppfylla allar kröfur um byggingarstaðla (C.E) og gott betur. Gluggarnir okkar búa yfir gríðarlegu álagsþoli gagnvart vindálagi (C5- sem er hæsta mögulega gildið). Sama gildir um slagregnsþéttileika gluggans, gluggarnir okkar þola 1350 pascal af þrýstingi. Einnig er loftþéttileiki gluggans fyrsta flokks, þ.e.a.s. hversu miklu lofti hann hleypir í gegn þegar hann er lokaður. Gluggarnir okkar eru í klassa 4 sem er hæsta mögulega gildið. Gluggarnir einangra afar vel gagnvart loftmengun ásamt hljóðmengun. Einnig uppfylla gluggarnir allar helstu fagurfræðilegu kröfur, vegna þess að allir gluggarnir okkar eru sérsmíðaðir eftir þörfum hvers og eins.